top of page
Um AB Stúdíó

AB Studio sérhæfir sig í hönnun einkagarða og útisvæða með áherslu á skýrar lausnir, gott skipulag og hagnýtar útfærslur. Stofan vinnur að heildarhönnun garða, verktakateikningum og hlutateikningum sem styðja við markvissa og vel skipulagða framkvæmd.

Aðalhönnuður AB Studio er Albert Guðmundsson, tækniteiknari og garðhönnuður með víðtæka reynslu af garðhönnun og garðverktöku. Sú reynsla skilar sér í lausnum sem eru ekki aðeins fallegar í teikningu, heldur raunhæfar í framkvæmd og hannaðar með langtímahugsun að leiðarljósi.

AB Studio er systurfyrirtæki Urban Beat, landslagsarkitekta með áratuga reynslu af hönnun opinberra rýma, íbúðarsvæða og einkaverkefna. Með því samstarfi nýtur stofan aðgangs að víðtækri þekkingu og faglegum vinnubrögðum, á meðan áherslan er áfram á aðgengilega og skýra þjónustu fyrir einkaaðila.

Markmið AB Studio er að gera garðhönnun skiljanlega, aðgengilega og vel útfærða – frá fyrstu hugmynd að framkvæmd.

Hafðu samband

AB Stúdíó, Faxafeni 10, 108 Reykjavík, 8987766

© 2026 AB Stúdíó

  • White Facebook Icon
  • White Twitter Icon
  • White Instagram Icon
bottom of page